Norræni Lýðháskólinn í Genf, Genfarskólinn, byrjar 18. mars í Runö í Svíþjóð. Að því loknu tekur við fjarnám sem stendur þar til þátttakendur fara út í lok maí.
Fornámskeið 18. til 21. mars í Svíþjóð
Fjarnám er í apríl og maí
Aðalnámskeið 30. maí til 18. júní í Genf
Tveir aðilar sækja Genfarskólann þetta árið eins og áður. Þeir eru Guðni Gunnarsson frá ASÍ/VM og Friðrik Atlason frá BSRB/SFR.





