Fyrsta útskrift úr trúnađarmannanámi Félagsmálaskólans og BSRB 03.03.2010

 

Nú hefur fyrsti hópurinn útskrifast eftir námsskrám Trúnaðarmannafræðsla I og II og hafa því lokið 142 kennslustundum.  Þetta eru allt félagsmenn í BSRB.

Þegar námsskráin var samþykkt var ákveðinn sigur unninn.  Nú geta nemendur sem klára þessar kennslustundir fengið metið allt að 11 einingum í framhaldsskóla.  Þó verður að hafa í huga að auðvitað er það háð hverjum og einum framhaldsskóla, hvað mikið hann metur. 

Mat á óformlegu námi í skólakerfinu er að aukast og það að fá trúnaðarmannanámskeiðin metin til eininga gerir námið eftirsóknarverðara, eykur verðmæti námsins og eftirspurn. 

Námsskráin var gefin út af FRÆ og samþykkt af Menntamálaráðuneytinu  árið 2007.    Síðan þá hefur verið boðið uppá  markvissa trúnaðarmannafræðslu hjá BSRB, sem skipulögð hefur verið stig af stigi.  Nú er þetta komið í ákveðinn farveg og verður boðið uppá öll þrepin á hverju misseri fram til ársins 2011. 

 

Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi trúnaðarmannafræðslunnar og hefur hún verið  til fyrirmyndar hjá BSRB, sérstaklega síðan námskráin kom út og aðsókn verið mjög mikil á öll námskeiðin.   

 

Námskeið framundan

 

 

 

 

Heilræði

Efi villir allflesta

Félagsmálaskóli alþýðu
Sætúni 1, 105 Reykjavík
Sími: 53 55 600
Beinn sími: 53 55 636
Tölvupóstur: fraedsla(a)asi.is