Félagsmálaskóli alþýðu

Félagsmálaskóli alþýðu er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. MFA, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, fer með rekstur og málefni skólans. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks.

Skólanefnd Félagsmálaskóla alþýðu ber ábyrgð á rekstri skólans ásamt skólastjóra. Félagsmálaskólinn fær framlag úr ríkissjóði til reksturs skólans. Þjónustusamningur er við Mími símenntun um ýmsa framkvæmdarþætti.

Starf og þjónusta skólans
Félagsmálaskólinn skipuleggur námskeið og fræðslu út frá þörfum og aðstæðum aðildarfélaga fyrrgreindra sambanda. Skólastjórinn sinnir ráðgjöf við stéttarfélög varðandi uppbyggingu fræðslu og hvernig þau geta nýtt sér hana til að efla og móta starfið.

Félagsmálaskólinn býður upp á námskeið fyrir:
Trúnaðarmenn
Stjórnarmenn
Starfsfólk stéttarfélaga

Á hverri önn eru sérhæfð námskeið í boði fyrir alla talsmenn stéttarfélaga. Á þeim er lögð áhersla á hefðbundna félagslega fræðslu. Jafnframt er boðið upp á námskeið sem taka á málefnum sem eru í brennidepli hverju sinni. Stéttarfélög geta pantað námskeið til að móta starf og stefnu og styrkja talsmenn sína. Einnig býður Félagsmálaskólinn talsmönnum upp á háskólanám í samvinnu við Háskólann á Akureyri.
Útgáfa fræðslu- og námsefnis er mikilvægur hluti af starfi skólans. Námsefni er bæði gefið út á prenti og rafrænu formi. Skólinn heldur úti gagnvirku vefnámi sem er aðgengilegt á internetinu.

Námskeið framundan

 

 

 

 

Heilræði
Sér framsýnn veg þótt sitji í myrkri
Félagsmálaskóli alþýðu
Sætúni 1, 105 Reykjavík
Sími: 53 55 600
Beinn sími: 53 55 636
Tölvupóstur: fraedsla(a)asi.is