MFA - Félagsmálaskóli alþýðu

Eftir umræðu á vettvangi Alþýðusambandsins var árið 1969 samþykkt reglu­gerð fyrir fræðslustofnun á vettvangi heildarsamtakanna, Menningar og fræðslusambands alþýðu, en segja má að rekja megi fyrirrennara MFA allt aftur til ársins 1924. Í reglugerð fyrir MFA kom fram að því væri ætlað að sinna almennri fullorðinsfræðslu, félagsmálafræðslu og starfsmenntun. Starfsemin fór hægt af stað en efldist með árunum. Í upphafi var áherslan einkum lögð á félagsmálafræðslu fyrir trúnaðarmenn og aðra talsmenn verkalýðshreyfingarinnar. Sú starfsemi fékk síðar mun traustari grunn, þegar ákvæði um rétt trúnaðarmann til að sækja námskeið á launum kom inn í kjarasamninga 1977. Félagsmálaskóli alþýðu var síðan stofnaður með þátt­töku verkalýðshreyfingarinnar og stjórnvalda og fjármögnun á fjárlögum með sérstökum lögum 1989. Þar með var skotið sterkum fjárhagslegum stoðum undir félagsmálafræðslu á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar.

Félagsmálaskóli alþýðu rekur umfangsmikla fræðslu og útgáfustarf­semi fyrir talsmenn aðildarsamtaka ASÍ og BSRB. Þar má nefna trúnaðar­mannanámskeið, háskólanám fyrir talsmenn verkalýðshreyfingarinnar og námskeiðahald sem tengist einstaka viðfangsefnum og starfi verkalýðshreyf­ingarinnar. Félagsmálaskólinn hefur jafnframt með höndum útgáfustarfsemi og uppbyggingu fræðslu á veraldarvefnum.

Námskeið framundan

 

 

 

 

 

Heilræði
Hugurinn ber mann hálfa leið
Félagsmálaskóli alþýðu
Sætúni 1, 105 Reykjavík
Sími: 53 55 600
Beinn sími: 53 55 636
Tölvupóstur: fraedsla(a)asi.is