Að efla framkomu sína

Á námskeiðinu auka þátttakendur færni sína í að koma fram af öryggi fyrir framan hóp af fólki og treysta á eigið ágæti. Þeir öðlast betri skilning á eigin kvíðaviðbrögðum og læra að stjórna sviðsskrekk og ótta. Farið er í framkomu og tjáningu, samspil ræðumanns og umhverfis, ótta og öryggi, að ná að halda athygli og kvíðavekjandi og sjálfsstyrkjandi hugsanir. Þátttakendur halda ræður og fá endurgjöf á framkomu sína frá þjálfara og öðrum þátttakendum.  Markmið námskeiðsins er að þátttakendur auki sjálfstraust sitt og nái meiri stjórn á eigin kvíðaviðbrögðum og læri betri, áhrifameiri og markvissari framsetningu.

Leiðbeinandi:                         Edda Björgvinsdóttir

Fyrir hverja:                          Trúnaðarmenn, talsmenn og aðra sem félögin vilja senda

 

Félagsmálaskóli alþýðu
Sætúni 1, 105 Reykjavík
Sími: 53 55 600
Beinn sími: 53 55 636
Tölvupóstur: fraedsla(a)asi.is