FÉLAGSLEG ÚTILOKUN
Hvað einkennir gerendur?
Samstarfsmönnum finnst oft eins og gerendur séu öruggir með sig og hafi hlutina á hreinu. Svo er ekki því að sá eða sú sem þarf að níðast á öðrum getur ekki verið öruggur með sig og sitt. Það eru ólíkar ástæður fyrir því af hverju einhver leggur annan í einelti.
Það getur verið hefð fyrir því í fyrirtækinu að taka starfsmenn fyrir og litið á það sem skemmtun að níðast á og hæðast að öðrum. En það getur líka verið að gerandi óttist um stöðu sína eða kunni ekki að sýna sig og sanna á annan hátt en með einelti. Sumir gerendur þurfa að sýna mátt sinn og megin og fá útrás fyrir valdþörf sína með því að níðast á öðrum. Ef gerandi öfundar þolanda er einelti leið til að gera lítið úr honum.
Ósýnilegar ástæður gerenda:
- Skortur á viðurkenningu.
- Ótti við að verða sér til skammar og að athlægi.
- Ótti við að aðrir nái meiri árangri.
- Ótti við uppsagnir og tilfærslur.
- Ótti við að vanhæfni verði uppgötvuð.
- Ótti við nýjungar og að geta ekki valdið þeim.
- Ótti við að tapa stöðu innan hópsins.
- Ótti við að vera ekki miðpunktur.
- Frekar að sparka í aðra en að fá spark.
Framkoma geranda
Framkoma geranda getur verið mjög mismunandi og þarf ekki að vera kvikindisleg og óvingjarnleg eins og maður ímyndar sér kannski ósjálfrátt.
Í samskiptum getur gerandi verið:
- Vingjarnlegur
- Nákvæmur
- Næmur á tilfinningar
- Opinn
- Óútreiknanlegur
- Viðkvæmur
- Heillandi og skemmtilegur
- Kurteis, formlegur og smámunasamur
- Skyngugur á líðan annarra
- Hreinskilinn úr hófi og alltaf sagt hvað honum finnst
- Óútreiknanlegur, vingjarnlegur í dag en fjandsamlegur á morgun
- Fordómafullur
Hegðun stjórnanda
Lýsing á mögulegri hegðun stjórnanda sem er gerandi og hvað hugsanlega getur verið á bak við gerðir hans.
Hegðun geranda | Ótti geranda | |
Er með stöðugar aðfinnslur og gagnrýni á starfsmann og ætlast til að hann hlýði í einu og öllu | = | Stjórnandi óttast að ekki sé tekið mark á sér og að hann hafi hvorki áhrif né völd |
Situr á upplýsingum | = | Óttast að tapa þekkingarforskoti og það ógnar tilveru hans |
Gerir mikið úr eigin hæfileikum og lítið úr árangri starfsmanns | = | Óttast að vera illa að sér, vanhæfur eða álitinn heimskur |
Óraunhæfar kröfur um afköst | = | Óttast að standa sig ekki í starfi gagnvart stjórnendum og eigendum |
Hegðun starfsmanns sem geranda
Lýsing á mögulegri hegðun starfsmanns sem geranda gegn vinnufélaga og hvað hugsanlega getur verið á bak við gerðir hans.
Hegðun geranda | Ótti geranda | |
Ræðst á og er með baktal og áróður gegn samstarfsmanni | = | Óttast að samstarfsmaður verði mikils metinn og að hann falli sjálfur í skuggann og standist ekki samanburð |
Gagnrýnir stöðugt samstarfsmann sem stendur sig vel og gefur í skyn að hann sé algjör framapotari | = | Óttast yfirvofandi hagræðingaraðgerðir og uppsagnir |
Gerir grín að skoðunum samstarfsmanns og skemmtir sér á hans kostnað | = | Óttast að vera ekki miðpunktur í hópnum og vera ekki vinsæll meðal vinnufélaga |
Bendir á mistök og fullyrðir að starfsmaður standi sig ekki | = | Óttast að gengið verði fram hjá sér og að kostir og hæfileikar sínir verði ekki metnir |
Hegðun starfsmanns sem geranda gegn yfirmanni
Lýsing á mögulegri hegðun starfsmanns sem geranda gegn yfirmanni og hvað hann mögulega óttast.
Hegðun geranda | Ótti geranda | |
Gerir lítið úr ákvörðunum yfirmanns fyrir framan aðra | = | Óttast að geta ekki haft völd og áhrif á gang mála |
Fylgir ekki fyrirmælum yfirmanns | = | Óttast að geta ekki ráðið sér nógu mikið sjálf/ur |
Gerir líf yfirmanns óbærilegt með sögusögnum | = | Óttast of miklar eða of litlar kröfur |
Hefur samband við framkvæmdastjóra til að gera lítið úr ákvörðunum yfirmanns síns | = | Óttast tilfærslu eða uppsögn og því reynt að lítillækka yfirmann |
Hugleiðingar fyrir gerendur
Ef þú hefur lagt aðra í einelti þá hugleiddu hverjar afleiðingar geta orðið ef þú heldur því áfram:
- Það er hægt að lögsækja þá sem leggja í einelti.
- Þú mátt reikna með að verða fordæmd/ur síðar fyrir það sem þú gerðir.
- Orðspor þitt getur fylgt þér á aðra vinnustaði
- Yfirmaður þinn getur verið tregur til að gefa þér meðmæli.
- Samviskan á kannski eftir að naga þig síðar meir.