BSRB-Trúnaðarmannanám 6. hluti
Um námskeiðið
Á námskeiðinu er farið yfir helstu hugtök í samningatækni. Lögð er áhersla á eðli og markmið samninga, grunnatriði samningagerðar og hvernig hún er notuð í daglegu lífi við úrlausn mála sem koma inn á borð trúnaðarmanna.Upplýsingar
- Dagsetning: 11. maí - 12. maí 2020
- Tími: 09:00 - 15:45
- Staður: Fundarsal BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík
Nemendur kynnast helstu hugtökum í samningtækni. Lögð er áhersla á eðli og markmið samninga, grunnatriði samningagerðar, hvernig hún er notuð í daglegu lífi við úrlausn mála sem koma inn á borð trúnaðarmanna. Megináhersla er á undirbúning framsögu og umræður á vinnustaða- og félagsfundum, fundarsköp og frágang fundagerða. Einnig er fjallað um einkenni og tilgang ýmissa ræðuforma. Lögð er áhersla á að skilgreina helstu einkenni rökræðu, mikilvægi þess að hlusta á skoðanir annarra.