SKILMÁLAR

  • Miðað er við að fjöldi þátttakenda á trúnaðarmannanámskeiðum og almennum námskeiðum fari ekki niður fyrir tíu. Stéttarfélögin greiða alltaf fyrir lágmarksfjölda þátttakenda.
  • Ef fella þarf trúnaðarmannanámskeið, eða sérpöntuð námskeið, niður vegna ónógrar þátttöku verður það að gerast a.m.k. viku fyrir áætlaðan námskeiðstíma. Að öðrum kosti þurfa þurfa félögin að greiða 20% af heildarkostnaði námskeiðs. 
  • Ef nemendur mæta aðeins á hluta af trúnaðarmannanámskeiðum eiga þeir eingöngu að fá viðurkenningarskjöl sem segja til um hvað þeir hafa tekið. Þá þarf kennari að fylgjast með því að allir mæti og hafa viðverulista á hverjum degi.
  • Félögin greiða fyrir skráða félagsmenn sem upphaflega var pantað fyrir, óháð því hvort þeir mæta eða ekki ef minna en vika er fram að námskeiði og engin tilkynning hefur borist frá félaginu til Félagsmálaskólans.
  • Ekki þarf að greiða námskeiðsgjald ef afboðað er viku fyrir áætlaðan námskeiðsdag.
  • Þátttakendur/Stéttarfélög sem afboða þátttöku innan við viku þurfa að greiða hálft gjald.
  • Fyrir þá sem afboða sig samdægurs eða mæta ekki án þess að láta vita er greitt fullt gjald.